ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Geir og Ólafur funda brosmildir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:01 › 26. janúar 2009
Ólafur Ragnar Grímsson tók á móti Geir Haarde fyrir örfáum mínútum.

Ólafur Ragnar Grímsson tók á móti Geir Haarde fyrir örfáum mínútum. DV/Valgeir Örn

Geir H. Haarde mætti rétt í þessu á Bessastaði þar sem hann ætlar að biðja Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, lausnar fyrir sjálfan sig og ráðuneyti sitt.

Þingrofsvaldið er í höndum Geirs og getur hann því farið fram á að þing verði rofið og boðað til kosninga. Þannig getur Geir komið í veg fyrir að minnihlutastjórn verði mynduð án Sjálfstæðisflokksins.

Hvorki Geir né Ólafur ræddu við blaðamenn áður en fundurinn hófst en samkvæmt blaðamanni DV sem er á staðnum voru þeir báðir nokkuð brosmildir. Ekki er búist við að fundurinn verði langur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.