„Það er alveg ljóst að forseti getur ekki sett nein formleg skilyrði,“ segir Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og fráfarandi forsætisráðherra, um þá yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta að hann myndi leggja áherslu á fjögur atriði í viðræðum sínum við formenn stjórnmálaflokkanna.
Geir er í viðtali í þættinum Ísland í dag á Stöð 2. Þar sagði hann að forsetinn gæti ekki sett nein skilyrði fyrir því hvernig næsta ríkisstjórn myndi starfa að hvað formenn stjórnmálaflokkanna hefðu til hliðsjónar við myndun ríkisstjórnar. Hann gaf líka lítið fyrir þau orð forseta að það væri forsetinn en ekki forsætisráðherra sem hefði þingrofsvaldið. Ólafur Ragnar Grímsson sagði á Bessastöðum í dag að forsætisráðherra gæti gert tillögu um að þing væri rofið en að það væri á endanum á valdi forseta hvort af því yrði eða ekki.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna