Ólafur Ragnar Grímsson forseti segir að tryggja verði að þjóðin fái farveg til að ákveða hvernig stjórnskipun Íslands verður í framtíðinni. Þetta sagði hann eftir að hafa orðið við lausnarbeiðni Geirs H. Haarde fyrir hönd ríkisstjórnar hans. Ólafur Ragnar sagði að það væri óvenjulegt að forseti kynnti áherslur sínar með þessum hætti fyrir myndun ríkisstjórnar en teldi nauðsynlegt að upplýsa þjóðina um þetta nú.
Forseti hefur orðið við lausnarbeiðni Geirs H. Haarde fyrir hönd ríkisstjórnar hans. Hann hefur líka farið þess á leit við núverandi ráðherra að þeir gegni störfum þar til ný ríkisstjórn tekur við völdum. Slíkt er samkvæmt venju við aðstæður sem þessar. Síðast gerðist það árið 1988.
Forsetinn sagði að það væri vísast ekki ofsagt að segja að sjaldan eða aldrei hefðu ráðherrar glímt við jafn mikinn vanda og núna. Hann sagði fjögur atriði setja svip á það sem þyrfti að gera nú. Fyrst væri það brýna verkefni að skapa á ný samfélagslega þátt í íslensku þjóðfélagi svo atburðir og áföll síðustu vikna og mánuða lægi, þannig að íslenskt samfélag gæti orðið eins og áður og fólk gengið til daglegra starfa á friðsaman og öruggan hátt. Í öðru lagi sagði forseti að halda þyrfti þannig á málum að teknar yrðu ákvarðanir sem hefðu hag almennings, heimila og atvinnulífs að markmiði. Í þriðja lagi að þjóðin fái sem fyrst tækifæri til að endurnýja umboð Alþingis með því að kjósa til þings. Í fjórða lagi telur forsetinn nauðsynlegt að skapa farveg fyrir þá umræðu í þjóðfélaginu að breyta stjórnskipan og stjórnarskrá landsins, „nýtt lýðveldi eins og sumir kalla það,“ sagði Ólafur Ragnar.
Ólafur sagði nauðsynlegt að segja frá því hvað hann myndi hafa að leiðarljósi í viðræðum við formenn stjórnmálaflokkanna þó ekki væri hefð fyrir því að forseti gerði slíkt áður en stjórnarmyndunarviðræður hæfust.
Ólafur Ragnar sagði að þjóðin þyrfti að fá þann farveg sem hún þyrfti til að segja til um hvort og þá hvaða breytingar hún vildi gera á stjórnskipun landsins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, mætir til forseta klukkan sex og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, klukkutíma síðar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins,, formaður Frjálslynda flokksins, mætir á fund forseta klukkan átta og Guðjón Arnar Kristjánsson klukkan níu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna