"Að hafna greiðslum til erlendra kröfuhafa eða virða að vettugi ábyrgðir vegna innistæðutrygginga mun leiða Ísland inn í átök við alþjóðasamfélagið, til hafta og stöðnunar í efnahagslífinu. Íslendingar og margar aðrar þjóðir hafa bitra reynslu af slíkri stöðu," segir Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur í Morgunblaðsgrein í dag. Geir H. Haarde vísaði til greinarinnar er hann kynnti fjölmiðlum þá ákvörðun stjórnarflokkanna að slíta stjórnarsamstarfinu í dag.
Yngvi segir að ágreiningur um uppgjör skulda við þær þjóðir sem skipta mestu máli um kaup á útflutningsvörum þjóðarinnar sé ekki til þess fallinn að auka velsæld í landinu. "Hætt er við að tekjur þjóðarinnar verði fyrir verulegum og jafnvel viðvarandi skaða sem bitnar á komandi kynslóðum. Sú byrði sem þannig verður lögð á landsmenn í framtíðinni verður mun þyngri en vaxtabyrði þeirra erlendu lána sem þarf til að opna hagkerfið á ný."
Yngvi Örn segir loks að þrátt fyrir að sú skuldsetning sem felist í stefnumörkun ríkisstjórnarinnar sé gríðarleg byrði fyrir ríkissjóð og þjóðina sé skynsamlegt að axla hana um hríð til að gæta að tekjuöflun og hagsmunum komandi kynslóða.
Yngvi Örn segir að tilraunir Íslands til að víkjast undan ábyrgð á innistæðutryggingum á EES-svæðinu yrðu túlkaðar sem vanefndir og muni um langa framtíð draga úr trúverðugleika Íslands í alþjóðlegum samstarfi og samningum.
Geir H. Haarde, starfandi forsætisráðherra, tók undir sjónarmið Yngva er hann kynnti blaðamönnum í dag þá ákvörðun stjórnarflokkanna að slíta stjórnarsamstarfinu.
Geir sagði mest um vert að stjórnvöld og skilanefndir bankanna stæðu með trúverðugum hætti að uppgjöri bankanna til þess að endurheimta traust í viðskiptum við útlönd.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða