ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E

Bjarni bauð Glitni íbúð og málverk

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:17 › 26. janúar 2009

Bjarni Ármannsson keypti íbúð og málverk af Glitni eftir starfslok. Eftir að bankinn hrundi bauð Bjarni bankanum að láta kaupin ganga til baka á sama matsverði og hann keypti á. Það er ekki stefna Nýja Glitnis að stunda kaup á málverkum og afþakkaði bankinn því boð Bjarna.

Þegar Bjarni lét af störfum sem forstjóri Glitnis fékk hann starfslokasamning upp á hundruð milljóna króna. Eftir að Bjarni hætti komst hann að samkomulagi við stjórn bankans um kaup á íbúð á Akureyri og nokkrum málverkum úr myndarlegu málverkasafni bankans. Málverkin voru sérstaklega metin af listsérfræðingi áður en Bjarni keypti þau.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.