Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og Robert Wade. „Við höfum aldrei skilgreint okkur sem par. Þetta er bara svona frjálslegt nútímasamband sem kemur ágætlega til móts við þarfir okkar beggja.“ MYND Gunnar Gunnarsson
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir hefur athyglisverða sögu að segja af því sem hún hefur upplifað bæði í störfum sínum innan íslensku stjórnsýslunnar og í einkalífinu. Hún komst í fréttirnar á dögunum þegar hún uppljóstraði um ýmislegt sem gerist á bak við tjöldin í stjórnsýslunni. Heilbrigðisráðherra brást til að mynda reiður við þegar Sigurbjörg lýsti yfir áhuga á starfi sem hann átti að ráða í.
„Hann öskraði „Nei, nei, nei“ og sagðist ekki hafa hug á að koma á „einhverri glamúr-þekkingarstofnun. Ég hafði aldrei upplifað svona áður og því brá mér auðvitað mjög við þessi viðbrögð. En ég er komin yfir fimmtugt og er búin að sjá og upplifa eitt og annað þannig að ég hélt alveg ró minni. Ég beið bara uns ráðherrann róaðist.“
Sigurbjörg hefur verið atvinnulaus frá því í september. Á henni er að heyra að gagnrýni hennar á íslenska stjórnsýslu hafi eitthvað með það að gera.
„Ég man þegar ég skrifaði fyrstu greinarnar mínar um heilbrigðismál í Morgunblaðið haustið 2005. Einn vinur minn hér heima á Íslandi sagði við mig: „Það er greinilegt Sigurbjörg að þú ert ekki á leiðinni heim.“ Þegar ég spurði hvað hann ætti við svaraði hann: „Við Íslendingar tökum ekki svona gagnrýni. Þú færð aldrei vinnu hér með svona afstöðu.“ Kannski hefur hann bara haft rétt fyrir sér,“ segir Sigurbjörg sem er með doktorspróf í stjórnsýslufræðum.
Í einkalífinu gekk Sigurbjörg í gegnum dimman dal þegar eiginmaður hennar svipti sig lífi fyrir rúmum áratug. Eftir það gríðarlega áfall ákvað Sigurbjörg að söðla algerlega um, fór í nám til Bretlands og er nú í fjarbúð með prófessor Robert Wade sem hún kynntist á skólalóðinni. Prófessornum sem sagði að réttast væri að gera Davíð Oddsson að sendiherra Íslands á Vanúatú.
Lesið viðtalið við Sigurbjörgu í helgarblaði DV í dag.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir