ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Finnur fær 200 milljónir á ári

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:25 › 23. janúar 2009
Finnur keypti félagið 2007.

Finnur keypti félagið 2007.

Orkuveita Reykjavíkur seldi Frumherja orkusölumæla fyrir 260 milljónir í stjórnarformannstíð Alfreðs Þorsteinssonar árið 2001. Tveir þjónustusamningar Orkuveitunnar við Frumherja eru milljarða virði. Í dag á Finnur Ingólfsson Frumherja.

Frumherji hf., fyrirtæki sem er í eigu Finnur Ingólfssonar, fyrrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra úr Framsóknarflokknum, fær tæpar 200 milljónir á ári frá Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta er fyrir leigu á hitaveitu-, vatns- og raforkusölumælum á heimilum á starfssvæði Orkuveitunnar og þjónustu tengda þeim.

Orkuveitan seldi Frumherja mælana árið 2001 fyrir tæpar 260 milljónir króna og gerði þá fimm ára þjónustusamning við fyrirtækið sem færði Frumherja rúmar 182 milljónir króna á ári.
Nýr sjö ára samningur upp á 200 milljónir króna var gerður við Frumherja árið 2007 - sama ár og Finnur Ingólfsson keypti fyrirtækið.

Tveir núverandi stjórnarmenn í Orkuveitu Reykjavíkur, þær Svandís Svavarsdóttir og Sigrún Elsa Smáradóttir, segjast ekki vita að samningurinn hafi verið gerður við Frumherja og því geti þær ekki tjáð sig um hann.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.