Ingibjörg Sólrún og Geir H. Haarde. Flokkar þeirra hafa samanlagt um 41 prósent fylgi, samkvæmt könnun MMR.
Kosningar verða eftir 107 daga, nái hugmyndir Sjálfstæðisflokksins fram að ganga um að kosið verði til Alþingis þann 9. maí næstkomandi. Til að setja þann tíma í samhengi má benda á að í dag eru 109 dagar síðan Glitnir féll og bankahrunið hófst, en það var þann 6. október í fyrra.
Fái þessar tillögur brautargengi hjá Samfylkingunni liggur fyrir að ríkisstjórnarflokkarnir tveir mun sitja við völd annan eins tíma og liðinn er frá bankahruninu.
Þann 24. nóvembr felldi þingheimur vantrauststillögu stjórnarandstöðuflokkanna. Hún var tekin fyrir 49 dögum eftir hrunið.
Samkvæmt könnun MMR, sem birt var í gær, mælist samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna nú í fyrsta skipti á kjörtímabilinu undir helmingi, eða 41 prósent.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
