ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 3m/s E

Vantrú fagnar fækkun í Þjóðkirkjunni

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:17 › 19. janúar 2009
Matthías Ásgeirsson, formaður Vantrúar, segir breytta tíma kalla á breytingu á stöðu Þjóðkirkjunnar.

Matthías Ásgeirsson, formaður Vantrúar, segir breytta tíma kalla á breytingu á stöðu Þjóðkirkjunnar. DV

Matthías Ásgeirsson formaður Vantrúar fagnar þeirri þróun að aldrei hafi færri talist til sóknarbarna Þjóðkirkjunnar. Hagstofa Íslands hefur birt tölur um mannfjölda eftir trúfélögum og sóknum miðað við 1. desember 2008 þar sem kemur fram að sóknarbörn í Þjóðkirkjunni eru 195,576.

Hlutfallslega þýðir það að hlutfalli skráðra fækkar úr 80,1 prósenti í 78,6 prósent af öllum 16 ára og eldri.
Í tilkynningu sem Vantrúa sendir frá sér í dag segir að sérréttindi ríkiskirkjunnar séu óverjanleg og breytinga sé þörf.

„Líkt og frá árinu 1990 fækkar hlutfallslega í hópi ríkiskirkjufólks. Eins og frá 1990 fjölgar þeim sem skrá sig utan trúfélaga. Við horfum á gjörbreytt landslag í trúfélagsmálum.Þegar stjórnarskrá og lög voru samin um sérréttindi ríkiskirkjunnar var það gert á þeirri forsendu að innan hennar væru nær allir landsmenn. Þessu hefur öllu verið snúið við. Nú er innan við 80% þjóðarinnar í ríkiskirkjunni, flestir væntanlega af gömlum vana enda vitum við að þessar tölur eru ekki í samræmi við trúarviðhorf þjóðarinnar, a.m.k. fjórðungur þjóðarinnar aðhyllist ekki trú. Þó eru sérréttindi ríkiskirkjunnar óbreytt og hún sogar til sín milljarða úr ríkissjóði á hverju ári. Fækkun í kirkjunni kallar á breytingu á stöðu hennar. Aðskilja þarf ríki og kirkju núna.“

Á sama tíma segir í tilkynningunni eru ríflega 10 prósent þjóðarinnar sem falla utan þeirra trúfélaga sem ríkið viðurkennir. „Þarna er pottur brotinn. Þetta fólk getur hvergi sótt þá þjónustu sem trúfélög veita með styrk úr sameiginlegum sjóðum landsmanna. Þessi ríflega 10% borga sína skatta en geta ekki sótt þjónustu á við þau sem trúfélögin bjóða varðandi jarðarfarir, hjóna- og manndómsvígslur. Þetta er í raun aðalhlutverk trúfélaga og það er með öllu ólíðandi að stór hluti landsmanna séu talin þriðja flokks borgarar með þessum hætti.
Vantrú fagnar þessari þróun og hvetur alla til að huga að trúfélagsskráningu.“ segir að lokum í tilkynningu sem Matthías Ásgeirsson sendir fyrir hönd Vantrúar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.