ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Leynimakk í Kópavogi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:00 › 13. janúar 2009
Gunnar Birgisson. Vill ekki tjá sig um hvort hann eigi leynihlutinn í Klæðningu hjá Kaupþingi í Lúxemborg.

Gunnar Birgisson. Vill ekki tjá sig um hvort hann eigi leynihlutinn í Klæðningu hjá Kaupþingi í Lúxemborg.

Mikil leynd hefur hvílt yfir því síðastliðin fimm ár hver eigi fjórðungseignarhlutinn í verktakafyrirtækinu Klæðningu hjá Kaupþingi í Lúxemborg. Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur verið nefndur sem mögulegur eigandi. Klæðning hefur unnið ýmis verk fyrir Kópavogsbæ á liðnum árum. DV hefur undir höndum skjöl þar sem vinur Gunnars fær umboð frá Kaupþingi til að ráðstafa eignarhlutnum. Gunnar vill ekki tjá sig um málið.

Í skjölunum kemur einnig fram að Klæðning hafi talið hafi æskilegt að Gunnar héldi áfram að starfa hjá fyrirtækinu eftir að hann seldi hlut sinn í því árið 2003 því það væri gott fyrir viðskiptin ,,vegna persónulegra tengsla Gunnars." Gunnar var á þessum tíma oddviti sjálftæðismanna í bæjarstjórn Kópavogs og varð bæjarstjóri árið 2005. Að sögn bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar lýsti Gunnar því yfir árið 2003 að hann ynni ekki lengur fyrir Klæðningu.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.