ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Páll Óskar fullbókaður í Bandaríkjunum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:05 › 12. janúar 2009
  • Páll Óskar. Slappar af í Bandaríkjunum.

    Páll Óskar. Slappar af í Bandaríkjunum.

Páll Óskar Hjálmtýsson er farinn til Bandaríkjanna í rúmlega þriggja vikna langt frí. Þar hyggst hann dvelja til 2. febrúar að því er fram kemur í talhólfi söngvarans. Erfitt er að sjá hinn duglega og orkumikla Palla slappa af í svo langan tíma og það skyldi þó aldrei vera að hann sé að athuga með „meik-möguleika“ vestanhafs ...?

Í talhólfinu kemur einnig fram að Palli er bókaður út árið, þótt ótrúlegt sé. Það er ekki komið fram í miðjan janúar og Palli er hættur að taka við bókunum fyrir 2009. Eins og greint var frá í fjölmiðlum á síðasta ári var söngvarinn einnig bókaður út árið 2008 þegar ekki ýkja langt var liðið á árið.

Það er deginum ljósara að Palli er vinsælasti tónlistarmaður landsins um þessar mundir og ekki bara þegar kemur að tónleikahaldi. Palli rokseldi plötuna sína Allt fyrir ástina sem kom út árið 2007. Sömu sögu er að segja um safnplötuna Silfursafnið sem Palli sendi frá sér í fyrra en safnið innihélt alla helstu slagara kappans og myndbönd hans.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.