Geir H. Haarde í farþegasætinu við hlið Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra í kjölfar þjóðnýtingar á Glitni. Að baki glittir í fjármálaráðherrann Árna Mathiesen.
Forsætisráðherra Íslands, Geir H. Haarde, notar oft tækifærið til að hitta viðskiptajöfurinn Björgólf Thor Björgólfsson, þegar sá síðarnefndi er á landinu. Þetta er svar Geirs við spurningum um ástæðu þess að hann hitti Björgólf Thor í gærkvöldi. Fram hefur komið að hugmynd sé á borðinu um að Landsbanki Björgólfs kaupi Glitni.
„Ég ætla ekki að segja frá því hvað okkar fer á milli þegar við hittumst," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra um fund sinn í nótt með Björgólfi Thor Björgólfssyni, á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu nú í hádeginu. "Ég nota gjarnan tækifærið og spjalla við Björgólf Thor þegar hann er á landinu."
Hann sagði engar formlegar viðræður vera í gangi um að forsvarsmenn Landsbankans kæmu að kaupum á Glitni.
Spurður hvað hann myndi gera ef þeir kæmu til hans nú með slíkt boð sagði Geir: „Þetta er spurning sem ég get ekki svarað að þessu sinni.“
Ríkið hefur þegar hagnast um tvö hundruð milljarða króna á því að þjóðnýta 75 prósent í Glitni, sem var að stórum hluta í eigu Stoða, félags Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og viðskiptafélaga.
Í viðtali við Fréttablaðið í dag sagði Jón Ásgeir Jóhannesson að þjóðnýting Glitnis væri „hluti af stærra plotti“. „Þetta er stærsta bankarán Íslandssögunnar og augljóslega hluti af stærri átökum sem hafa ekki farið fram hjá neinum. Nú hafa menn náð ákveðnum hefndum og hljóta að vera ánægðir."
Spurður um þessi orð Jóns Ásgeirs sagði Geir: „Ég ansa ekki svoleiðis fullyrðingum.“





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir