“Það er mikil fátækt á svæðinu, en við slíkar aðstæður er mun algengara að konur hafi ekki eða þekki ekki úrræði til að bregðast við kynbundu ofbeldi” segir Gerður Gestsdóttir verkefnastjóri Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Stofnunin hefur ákveðið að styrkja verkefni í Níkaragva sem hefur það að markmiði að draga úr kynbundnu ofbeldi í sveitarfélaginu Juigalpa í miðhluta landsins.
Framkvæmd verkefnisins verður í höndum kvennasamtakanna AMNLAE, en síðustu 30 árin hafa samtökin unnið að því að bæta stöðu kvenna og auka réttindi þeirra.
Gerður segir að kynbundið ofbeldi í Níkaragva sé alvarlegt og vaxandi vandamál í landinu, ekki síst á þeim slóðum sem verkefnið nær til. Juigalpa er nautgriparæktarsvæði og karllæg menning enn sterkari þar en annars staðar.
Með verkefninu verður leitast við að auka vitund kvenna og stofnana um kynbundið ofbeldi, afleiðingar þess og úrræði. Verkefnið er áætlað til eins árs til að byrja með og leggur ÞSSÍ til um þriðjung af fjármagninu, eða um 20 þúsund Bandaríkjadali.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun