Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Það er allt útlit fyrir að Mamma Mia sé að komast á toppinn yfir mest sóttu bíómyndir allra tíma á Íslandi. Nú þegar hafa níutíu þúsund manns séð myndina og munu að öllum líkindum þúsund manns bætast við á sunnudaginn þegar fimmta söngsýningin á myndinni fer fram í stóra sal Háskólabíós. Í upphafi var prófað að halda söngsýningu í litla salnum sem seldist þrisvar sinnum upp og því var fjórða sýningin haldin í stóra salnum síðastliðinn föstudag og var vægast sagt troðið út úr dyrum og stemningin góð. Hægt er að tryggja sér miða á midi.is en ef ekki selst upp í forsölu verður hægt að kaupa sig inn við innganginn. Hingað til hefur þó verið uppselt þrem dögum fyrir sýningar svo mælt er með því að tryggja sér miðann tímanlega.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum