Strákastelpuútlit verður í tísku í haust og hippalegar lambagærur hljóta uppreisn æru. Þetta segja tískumógúlar tímaritsins Nýs lífs.
Laufin falla og haustlitirnir verða allsráðandi í náttúrunni. Það kólnar og fólk setur sig í nýjar og hlýjar stellingar. Framundan eru spennandi tímar og hausttískan er þar engin undantekning.
Sveitarómantíkin er áberandi með reiðjökkum og háum stígvélum. Strákastelpu-útlitið heldur áfram og lambagæra hippatímans fær uppreisn æru. Ítarleg samantekt yfir helstu trend vetrarins og er að finna í nýjasta tölublaði tímaritsins Nýtt Líf, sem kom út á fimmtudaginn. Þar er einnig túlkun þeirra Agnieszka Baranowska og Veru Pálsdóttur á vetrartískunni einstökum í tískuþætti. En þess má geta að báðar hafa þær getið sér gott orð víða um heim og ekki síst í París, Agnieszka Baranowska sem stílisti og Vera Pálsdóttir sem ljósmyndari.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 



Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ