ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Skotárás beint að Gilani

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:06 › 3. september 2008
  • Árásinni var beint að Gilani, forsætisráðherra Pakistans.

    Árásinni var beint að Gilani, forsætisráðherra Pakistans.Mynd: AFP

Byssumenn í Pakistan skutu á bílalest í Rawalpindi sem í voru háttsettir embættismenn. Grunur leikur á að árásinni hafi verið beint að Yousaf Raza Gilani, forsætisráðherra Pakistans, en ekki liggur fyrir hvort Gilani hafi verið í bílalestinni þegar árásin var gerð.

Í yfirlýsingu frá pakistönskum stjórnvöldum fékkst það þó staðfest að Gilani væri heill á húfi og allir þeir sem urðu fyrir árásinni. Í desember var Benazir Butto myrt af byssumönnum, einnig í Rawalpindi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.