Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Ríkisstjórn Úkraínu er að falli komin og sakar forseti landsins, Viktor Jútsjenkó, Júlíu Tímósjenkó forsætisráðherra um fyrirhugað valdarán.
Erfiðleikar hafa lengi loðað við ríkisstjórn Jútsjenkó, en nú syrtir enn frekar í álinn eftir að bandamenn hans á þingi vörpuðu samstarfi við stjórnarflokk hans fyrir róða.
Á þriðjudaginn slóst Júlía Tímósjenkó í lið með stjórnarandstöðunni og samþykkti lög sem ætlað er að draga úr völdum forsetans, en auka völd forsætisráðherrans.
Jútsjenkó sagði að þær aðgerðir andstöðunnar jöðruðu við valdarán og að ný samstarfsstjórn yrði mynduð.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu