Ómar Ragnarsson, formaður Íslandshreyfingarinnar, segist alltaf gera ráð fyrir því að síminn hans sé hleraður. Ómar segist gera ráð fyrir þessu eftir að nokkur atvik komu upp með farsíma Ómars, þar sem símasérfræðignar sem hann ræddi við sögðu honum að truflanir á farsíma hans mætti aðeins skýra með því að einhver sem hefði fjármagn og mannskap til, væri að hlera hann.
„Mér var sagt að eins og þetta lá fyrir með símann minn, þá væri ég inni á einhverskonar símatorgi,“ segir Ómar
Ómar segir þrjá aðra menn sem hann tengist hafa upplifað samskonar truflanir á símanum og allir eigi þeir það sameiginlegt að ríkisstjórnin er lítt hrifin af þeim. Hinar meintu hleranir hófust um það leiti sem Ómar var fréttamaður á Ríkissjónvarpinu að fjalla um stóriðjuframkvæmdir.
Ómar hefur kannað málin hjá símafyrirtækjunum, en er ekki vongóður um að fá niðurstöðu í sín mál. „Ég veit að ég fæ ekkert út úr því.“





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun