Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Sex manns létu lífið þegar hinn 28 ára gamli Isaac Zamora, hóf að skjóta vegfarendur í íbúðahverfi smábænum Alger í Washington-fylki í Bandaríkjunum.
Móðir árásarmannsins hefur sagt son sinn alvarlega veikan og hún hafi lengi reynt að fá hjálp fyrir hann. Zamora hefur nýlokið sex mánaða fangelsisvist eftir að fíkniefni fundust í fórum hans.
Meðal þeirra sem létu lífið þegar Zamora hóf skothríðina var aðstoðarlögreglustjóri bæjarins.
Lögreglan handtók Zamora þar sem hann ók á miklum hraða eftir hraðbraut frá smábænum. Íbúarnir eru harmi slegnir yfir atburðinum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu