Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Stjórnvöld í Afganistan hafa samþykkt tillögu Bandaríkjanna um þríhliða rannsókn á falli óbreyttra borgara í loftárásum í Herat-héraði í síðasta mánuði. Þetta kom fram í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneyti Afganistan í gær.
Bandaríkjaher hefur dregið í efa fullyrðingar afgönskra stjórnvalda um að níutíu og sex óbreyttir borgarar hafi fallið í árásinni, sem vakti upp mikla reiði í landinu. Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið undir fullyrðingar afganskra stjórnvalda.
Að sögn talsmanns utanríkisráðuneytisins hefur ríkisstjórnin samþykkt að taka þátt í rannsókninni ásamt fulltrúum alþjóðaliðsins í Afganistan og Sameinuðu þjóðunum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung