„Það skellur bara á verkfall á miðnætt, það er ekkert öðruvísi, því miður,“ segir Bára Hildur Jóhannsdóttir, formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands um fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir ljósmæðra.
„Næsti samningafundur er boðaður klukkan 10 á morgun tíu tímum eftir að verkfall skellur á,“ segir Bára og bætir þó við að jafnvel þótt talsverð lömun verði á störfum þeirra verður tryggð neyðarþjónusta við fæðandi konur.
„Það sem skerðist er Hreiðrið á Landspítalanum og meðgöngudeild. Mæðravernd er úti að mestu leyti. Fósturgreiningadeild sinnir bráðatilvikum þannig að það fylgir þessu mikil lömun. Á suðurlandi verða eingöngu morgunvaktir þannig að það verður ekki boðið upp á fæðingar á kvöld- og næturvöktum. Við erum náttúrulega að vinna eftir þrettán ára gömlum undanþágulistum, þannig hljóma þeir,“ segir Bára Hildur um ástandið sem skapast hefur í kringum kjarabaráttu ljósmæðra.
Færri ljósmæður komust að en vildu á þingpöllum Alþingis í dag þar sem þær hugðust fylgjast með fyrirspurnartíma þar sem verkfallið var meðal annars rætt. Bára segir ljósmæður afar svekktar með lýðræðið í verki hvað þetta varðaði. Hvað umræðurnar á Alþingi varðaði sagði Bára að ljósmæður hafi verið ánægðar með erindi Katrínar Jakobsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, sem og fyrirspurnar Ellerts B. Schram. Hún segir að Ljósmæðrafélagið finni fyrir miklum stuðningi í samfélaginu og að þær muni berjast ótrauðar fyrir sínu. „Þetta er hörmuleg staða, við erum ekki bjartsýnar og snýst um að berjast gegn framtíðarvanda. Við lifum ekki bara á stoltinu eins og starfið er nú dásamlegt af öllu öðru leyti,“ segir Bára Hildur Jóhannsdóttir að lokum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir