Maðurinn sem fannst látinn í íbúð sinni á Skúlagötu í fyrrakvöld lést af völdum höfuðáverka. Þetta staðfestir Friðrik Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild. Tveir menn voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald til áttunda september grunaðir um aðild að andláti hans. Friðrik segir að nú verði farið í að rannsaka hvernig maðurinn fékk áverkanna.
Það var um kvöldmatarleytið í fyrrakvöld sem maðurinn fannst í íbúð sinni látinn. Félagi mannsins sem ekki hafði séð hann í nokkra daga hafði samband við lögreglu og ákvað lögregla að grennslast frekar fyrir um manninn. Hann fannst skömmu síðar látinn í íbúð sinni.
Þessi sami félagi mannsins var handtekinn í kjölfarið en ekki reyndist unnt að yfirheyra hann strax þar sem hann var í annarlegu ástandi. Samkvæmt heimildum DV er hinn maðurinn, sem var handtekinn, grunaður um að hafa verið hjá manninum skömmu áður en hann lést. Mennirnir tveir sem eru í haldi lögreglu eru á fimmtugs- og sextugsaldri.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir