Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Fulltrúar gallerís í Gateshead í Bretlandi mættu í dómssal í vikunni, ákærðir fyrir að misbjóða almenningi. Í gallerí þeirra hafði verið til sýnis stytta af Jesú kristi með reistan reður.
Listaverkið var hluti sýningar á vegum Miðstöðvar Eystrasalts um samtímalist, sem haldin var í kringum áramótin 2007-2008. Verkið var eftir kínverska listamanninn Terence Koh og var sett saman af mörgum gipsfígúrum, þar á meðal Mikka mús og ET, sem voru í ástindi örvunar.
Lögfræðingar Emily Mapfuwa, fertugrar konu sem var misboðið, reka einkamál gegn galleríinu, og sagði Mapfuwa að listamiðstöðin hefði aldrei vogað sér að sýna spámanninn Múhameð með þessu móti. Málinu var frestað til 23. september.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu