ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Komast ekki í fótbolta

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:08 › 3. september 2008
Ónothæfur sparkvöllur.

Ónothæfur sparkvöllur.

Börnin í Klébergsskóla komast ekki í fótbolta á sparkvelli við skólann sem var kláraður í síðustu viku. Ástæðan er sú að sparkvöllurinn varð fyrir skemmdum í lægðinni sem gekk yfir landið í síðustu viku. Hlið vallarins er brotin og ljósastaur skagar inn yfir gervigrasið.

Við vorum búin að bíða eftir þessum sparkvelli í heilt ár, síðan var hann loks kláraður á fimmtudaginn var þegar þetta gerist. Krakkarnir urðu fyrir miklum vonbrigðum,“ segir Björgvin Þór Þórhallsson, skólastjóri í Klébergsskóla á Kjalarnesi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.