Íslenska viðskiptamódelið er nálægt því að bráðna segir í umfjöllun fréttavefjar Børsen í Danmörku um íslenskt efnahagslíf. Þar segir að margir sérfræðingar telji að uppbygging viðskipta á Íslandi sé mjög viðkvæm, og vísa til flugfélaga, verslana og fasteigna.
„Og reyndar var það Daninn Morten Lund, sem á sunnudaginn ýtti opinberlega á stopp-hnappinn á Nyhedsavisen, en verkefninu var ýtt úr vör af hinum íslenska Baugi fyrir hálfu öðru ári,“ segir á vefsíðu Børsen.
Styrkur og veikleiki íslenska viðskiptamódelsins, segir á vefsíðunni, er nátengdur menningu þar sem bankar og fyrirtæki standa nærri hvert öðru. Ef fjárfestar standa sig ekki í stykkinu sitja bankarnir uppi með reikninginn.
Børsen vitnar í Paul Rawkins hjá matsfyrirtækinu Fitch Ratings í Lundúnum. Rawkins mun vera sérfræðingur fyrirtækisins í málefnum Íslands og hafði þetta að segja: „Íslensku bankarnir eru undir þrýsting vegna hækkandi vaxta og fallandi hlutabréfaverðs. Hann telur að íslensku bankarnir standi frammi fyrir mjög erfiðum aðstæðum nú.
Steen Thomsen, prófessor við stofnun sem snýr að alþjóðaefnahagsmálum og fyrirtækjastjórn, er einnig ómyrkur í máli: „Ef nú einn af bönkunum fer á hausinn, hvað verður þá um hina? Ekki er ólíklegt að menn standi þá frammi fyrir hruni kerfisins, þar sem hver hryndi á fætur öðrum. Þá myndi fjöldi fyrirtækja, sem eru fjármögnuð af bönkunum, einnig rúlla yfir. Áhættan á kerfið er mjög mikil,“ segir Thomsen á vefsíðu Børsen.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung