Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Sómalskir sjóræningjar tóku tvo franska ríkisborgara í gíslingu undan ströndum Sómalíu í gær. Mennirnir tveir voru á skútu þegar þeir voru teknir en ekki liggur fyrir hvort farið hafi verið fram á lausnargjald fyrir mennina.
Utanríkisráðuneyti Frakklands hefur lítið vilja gefa upp um til hvaða aðgerða verði gripið. Fyrr á þessu ári leystu frönsk stjórnvöld franska ríkisborgara úr höndum sjóræningja með valdi. 260 sjórán voru framin í heiminum á síðasta ári, þar af 30 undan ströndum Sómalíu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu