„Það er frábært að vera komin í friðsæla umhverfið hér á Íslandi,“ segir Keníamaðurinn Paul Ramses sem kom aftir til Íslands eftir að dómsmálaráðuneytið hnekkti úrskurði Útlendingastofnunar um að mál hans yrði tekið fyrir úti á Ítalíu.
Þegar blaðamaður DV náði tali af honum var hann í strætisvagni á leiðinni upp í Kópavog þar sem fjölskyldan ætlaði að fara í göngutúr. Ramses segir að undanfarið hafi þau slappað en einnig talað við lögfræðing sinn um stöðu mála.
Ramses er himinlifandi yfir því að vera komin aftur til Íslands. Hann segir magnað að hafa verið á Austurvelli þegar ólympíufararnir voru hylltir.
„Já ég var í miðjum hópnum að horfa á íslensku handboltamennina, það var alveg æðislegur andi í loftinu.“
Hann segist annars hafa skokkað mikið undanfarið enda sé loftslagið miklu þægilegra hér heldur en á Ítalíu. Rosemary og Ramses hafa fengið mikið af vinum sínum í heimsókn undanfarið sem hafa samglaðst þeim og segir Ramses það hafa verið afar ánægjulegt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð
Harmleikur í Hafnarfirði: Búið að yfirheyra hinn grunaða