Tveir eldsvoðar í sama húsi á Ísafirði með stuttu millibili í ágúst voru kveiktir af mannavöldum. Vettvangsrannsókn lögreglunnar á Ísafirði leiðir þetta í ljós en eldarnir komu upp miðvikudaginn 20. ágúst og mánudaginn 25. ágúst.
Lögreglan á Vestfjörðum vinnur að rannsókn málsins og biður alla þá sem einhverja vitneskju hafa um þessi tvö tilvik að hafa samband í síma 450 3730.
Í helgarblaði DV um helgina sagði Stefán Sipahi, íbúi hússins, að hann hafi haldið að börnin sín hefðu brunnið inni. „Við fórum út í Bónus og vorum frá í svona tuttugu mínútur, þegar við komum til baka sáum við húsið standa í ljósum logum. Við hlupum út úr bílnum og þaðan að húsinu því við héldum að börnin væru að brenna inni,“ sagði Stefán um hrikalega reynslu sína.
Hann sagði að þegar hann nálgaðist húsið hafi verið kallað til hans og honum tilkynnt að börnin hans væru óhult í lögreglubíl. Í ljós kom að þrettán ára bjargvættur hafði áttað sig á því að einhver gæti verið í íbúðinni. Því hljóp hann inn og kom börnunum út á farsælan hátt. Fjölskylda Stefáns hefur þakkað honum innilega fyrir lífgjöfina. Stefán sagðist eilíflega þakklátur hetjudáð unglingspiltsins.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir