Lárus Welding, forstjóri Glitnis, var spurður að því í Silfri Egils þann 21. september síðastliðinn hvort hann teldi einhverjar líkur á því að íslenskir bankar yrðu þjóðnýttir líkt og gerst hefur í Bandaríkjunum. Svar hans var stutt: „Alls ekki,“ Sama svar fékkst þegar hann var spurður hvort hann teldi líklegt að Glitnir væri að riða til falls vegna erfiðleika á fjármálamörkuðum.
Lárus talaði þvert á móti um að hlutfallsleg stað íslensku bankanna færi batnandi og á því sviði stæðu íslensku bankarnir vel. Sveigjanleikinn í kerfinu hefði skapað þeim sterka stöðu.
Það er því skammt stórra högga á milli í fjármálaheiminum ef marka mátti orð forstjóra Glitnis fyrir viku síðan og niðurstöðu síðustu klukkustunda þar sem íslenska ríkið bjargaði bankanum frá þroti með því að kaupa 75 prósenta hlut í Glitni.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir