ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 7.4° 10m/s S

Þungar áhyggjur af launadeilu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:33 › 2. september 2008

Kvennahreyfing Samfylkingarinnar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri launadeilu sem upp er komin á milli ríkisins og ljósmæðra. Hreyfingin skorar á ríkisstjórnarflokkana að leysa deiluna sem allra fyrst og standa þannig við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um endurmat launa hefðbundinna kvennastétta.
Í ályktun segir að laun ljósmæðra séu meðal þeirra sem lægst gerist innan Bandalags háskólamanna þótt nám þeirra sé eitt það lengsta sem krafist er að ríkisstarfsmönnum. Meta þurfi störf kvenna að verðleikum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.