ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Stórsmygl í Norrænu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:22 › 2. september 2008
Stutt er síðan reynt var að smygla 170 kílóum af fíkniefnum með Norrænu.

Stutt er síðan reynt var að smygla 170 kílóum af fíkniefnum með Norrænu.

Erlendur karlmaður á sjötugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald eftir að hafa verið staðinn að smygli á talsverðu magni fíkniefna. Maðurinn flutti efnin til landsins í bíl með Norrænu.

Fíkniefnin fundust við tollafgreiðslu Norrænu í dag. Tollgæslumenn frá Eskifirði og úr Reykjavík auk lögreglumanna og tollgæslumanna á Seyðisfirði unnu að málinu í dag og voru fíkniefnahundar notaðir við leitina.

Málið virðist eiga sér nokkurn aðdraganda því hvort tveggja íslenska og færeyska tollgæslan hafa unnið að málinu.

Ekki fást upplýsingar um hversu mikið magn fíkniefna fannst í bílnum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.