Á næstu vikum kemur í verslanir splunkuný barnaplata með lögum og textum eftir Braga Valdimar Skúlason Baggalútsmeðlim. Bragi naut dyggrar aðstoðar Guðmundar Kristins Jónssonar, betur þekktur sem Kiddi í Hjálmum, en rjómi íslenskra söngvara hljómar á plötunni.
Fyrsta lagið í spilun af plötunni sem hefur hlotið heitið Gilli Gill er lagið Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn en í laginu syngja þeir Björgvin Halldórs og Egill Ólafs ásamt þeim Möggu Stínu og Sigríði Thorlacius. „Lagið er samið í bullandi góðæri en er eiginlega bara orðið ennþá betra eftir því sem líða tekur á kreppuna. Það þekkja þetta öll börn að pabbi sé með þyrlupall í svefnherberginu,“ segir Bragi og bætir við: „Þetta er örugglega mesti fullorðinstextinn á plötunni með erfiðustu orðunum kannski en þetta er ein af þessum barnaplötum sem henta fyrir alla.
Við Kiddi Hjálmur byrjuðum að taka þessa plötu upp sem hliðarverkefni fyrir tæpu ári. Memfísmafían sér um undirleikinn og svo höfum við fengið hina og þessa til að syngja í vetur,“ segir Bragi en ásamt fyrrnefndum söngvurum ljá þeir Sigtryggur Baldursson, Siggi Hjálmur, Gummi úr Baggalút og Snorri úr Sprengjuhöllinni rödd sína á plötunni.
Sjálfur á Bragi dóttur og aðspurður hvort hún hafi hjálpað pabba að velja réttu lögin á plötuna svarar hann léttur í bragði: „Já, mér til mikillar hrellingar er hún farin að syngja lögin ótt og títt. Ég veit ekki hvað fólkið á leikskólanum er farið að halda.“
Nánar um Gilli Gill og leðjuslags Baggalútsmanna við Femínistafélagið má lesa í DV í dag.
Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn
Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar