Óhætt er að fullyrða að Ólafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, sé einn dáðasti maður þjóðarinnar nú um stundir. Ekki furða þar sem hann spilaði einna stærstu rulluna í því að landa ólympíusilfrinu sem landsliðið kom með heim frá Peking. Aðdáun landsmanna á Ólafi birtist bæði í fjölmiðlum og á bloggsíðum, en auðvitað fyrst og fremst í fagnaðarlátunum þegar fyrirliðinn og félagar hans í landsliðinu komu til landsins síðastliðinn miðvikudag.
Enn eina birtingarmynd aðdáunarinnar má finna á bloggsíðu Ólafs sjálfs á slóðinni melankolinn.blog.is. Um miðjan dag á föstudag voru heimsóknir inn á síðuna vikuna þar á undan tæplega sjö hundruð og fimmtíu talsins og flettingar tæplega fimmtán hundruð. Það þykir ekki beint mikið samanborið við vinsælustu bloggsíðurnar. Málið horfir hins vegar nokkuð öðruvísi við þegar haft er í huga að tæp tvö ár eru síðan Ólafur skrifaði síðast færslu á síðunni.
Á meðal þess sem kemur fram í skrifum Ólafs er óánægja hans með íslenska skólakerfið, og þá helst grunnskólastigið. Það er nokkuð íronískt í ljósi þess að sú manneskja sem kysst hefur og kjassað Ólaf einna mest síðustu daga eftir velgengnina í Peking er menntamálaráðherra og stuðningsmaður landsliðsins númer eitt, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Ólafur setur hugmyndir sínar reyndar fram í formi samtals á milli tveggja persóna sem hann kallar Ask og Emblu, en líklegt má telja að þetta séu skoðanir fyrirliðans sjálfs.
Ólafur (eða Askur) segir meðal annars á síðunni að próf séu óþörf í grunnskóla. Eina frammistöðumatið ætti að vera hve vel verkefni eru leyst af hendi. „Allt úr prófum gleymist af því þau eru bara orðin tóm,“ segir Ólafur. Þá talar hann um „menntakerfiseyðimörkina“ og að mörgum fögum sem kennd eru strax í grunnskóla sé ofaukið. Í draumaskóla Ólafs/Asks yrðu landafræði, heimilisfræði, saga, erlendar tungur, eðlis- og efnafræði „sett á ís og biðu síns rétta vitjunartíma. Listir, heimspeki, bókmenntir sem lýsa tilverunni og sannleiksviðleitni, sálfræði og hugleiðsla yrði það upphafsáreiti sem barnið, for-unglingurinn og unglingurinn fengju í nestisbox sitt.“
Þess má geta að Ólafur talar einnig um ýmsa andlega þjálfun sem hljómar kunnuglega í eyrum þeirra sem séð hafa og lesið viðtöl við kappann síðustu vikurnar. Þar á meðal fjallar Ólafur um „létta sjálfsdáleiðslu“ þar sem einstaklingurinn sett upp senur í huganum sem hann er líklegur til að upplifa í veruleikanum sjálfum og er þannig betur undirbúinn þegar á hólminn kemur. Það blandast engum hugur með að Ólafur og félagar voru betur undirbúnir þegar á Ólympíuhólminn í Peking var komið en á nokkru öðru móti sem landsliðið hefur tekið þátt í.
Bloggsíða Ólafs var ekki beint langlíf ef svo má segja þar sem fyrsta færslan var skrifuð 17. nóvember 2006 og sú sjötta og síðasta þrettán dögum síðar. Lengi er þó von um að fleiri færslur birtist þar. Í það minnsta er augljóst að íslenskir aðdáendur Ólafs Morfeusar vona það með tíðum heimsóknum. Spurning hvort menntamálaráðherra sé á meðal þeirra sem kíkja reglulega inn á síðuna með von um fleiri ábendingar um hverju megi breyta og bæta í íslenskum skólamálum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum