Fjörutíu og þriggja ára Bandaríkjamaður, Christofer Sullivan, á yfir sér höfði allt að sextíu ára falgelsisvist vegna þjófnaðar á undirfötum og líflátshótunum í garð margra kvenna í Wisconsin.
Hann er ákærður fyrir að hafa brotist inn til fimm kvenna og stolið brjóstahöldurum, nærbuxum og ljósmyndum af konunum. Hann skeytti andlit kvennanna á myndir kvenlíkama sem hann fann í klámblöðum og sendi konunum síðan afraksturinn, auk ljósmynda af nöktum Barbí-dúkkum.
Ástæður Sullivans voru af ýmsum toga að sögn hans; ein konan hafði hátt þegar hún stundaði kynlíf með kærasta sínum, önnur sló garðinn sinn íklædd bikiníi og þar fram eftir götum.
Sulivan tjáði lögreglunni að hann væri „kynferðislegt rándýr“, en trúar sinnar vegna gæti hann ekki í raun tekið konurnar af lífi. Því hefði hann gripið á þetta ráð, sem sennilega verður honum dýrkeypt.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu