ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

Mennirnir enn í yfirheyrslum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:43 › 2. september 2008
Mennirnir tveir eru í yfirheyrslum hjá lögreglu.

Mennirnir tveir eru í yfirheyrslum hjá lögreglu. Mynd: DV

Mennirnir tveir sem lögregla handtók í tengslum við rannsókn á láti karlmanns sem fannst í íbúð sinni á Skúlagötu í gær eru enn í yfirheyrslum hjá lögreglu. Friðrik Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í rannsóknardeild, vill ekki gefa upp hvort málið sé rannsakað sem morð eða andlát.

Þá var um kvöldmatarleytið í gær sem maðurinn fannst í íbúð sinni. Félagi mannsins sem ekki hafði séð hann í nokkra daga hafði samband við lögreglu og ákvað lögregla að grennslast frekar fyrir um manninn. Hann fannst skömmu síðar látinn í íbúð sinni.

Þessi sami félagi mannsins var handtekinn í kjölfarið en ekki reyndist unnt að yfirheyra hann fyrr en í dag þar sem hann var í annarlegu ástandi. Maðurinn sem lést var með áverka á höfði en ekki liggur fyrir hvort maðurinn hafi látist af þeim áverkum. Samkvæmt heimildum DV er hinn maðurinn, sem var handtekinn, grunaður um að hafa verið hjá manninum skömmu áður en hann lést. Mennirnir tveir sem eru í haldi lögreglu eru á fimmtugs- og sextugsaldri.

Aðspurður segir Friðrik að ekki liggi fyrir hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir mönnunum. Það muni væntanlega skýrast með kvöldinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.