ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Íslenskar konur lána afrískum

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:00 › 2. september 2008
Bjarney og Svanhvít hjálpa afrískum konum.

Bjarney og Svanhvít hjálpa afrískum konum.

Hópur íslenskra kvenna hefur tekið sig saman um að veita efnilegum en illa stöddum konum í Afríku smálán til að hjálpa þeim að hjálpa sér sjálfar.

„Við lánum afrísku konunni sem er til dæmis að stækka litla bakaríið sitt því þá getur hún jafnvel selt fleiri brauð. Hún getur þá eflt viðskipti sín með því að kaupa meira hráefni, nýjan ofn eða eitthvað svoleiðis. Þar af leiðandi getur hún ráðið til sín starfsfólk og menntað börnin sín," segir Bjarney Lúðvíksdóttir í samtali við tímaritið Nýtt líf. Bjarney, sem áður var í fyrirsætubransanum hjá Eskimo models, kom í gang samnorræna þróunarverkefnið Navia, ásamt Svanhvíti Aðalsteinsdóttur, sem áður starfaði í utanríkisráðuneytinu hjá Útflutningsráði.
Bjarney útskýrir verkefnið nánar. "En hún borgar til baka með vöxtum og þannig gefst okkur kostur á að lána tveimur öðrum næst. Reynslan hefur sýnt að rétta leiðin er að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft, það er sú leið sem þarf til að byggja upp samfélag."
Markmið Navia er að nýta þekkingu og styrk norrænna kvenna til að efla konur í þróunarlöndunum sem vinna sem frumkvöðlar að uppbyggingu samfélags síns. Ein leiðin er að koma af stað tekjuskapandi verkefnum svo þessar konur séu ekki háðar ölmusu. Því skiptir máli fyrir konur í Afríku að hafa aðgang að fjármagni. Oft þarf lítið til og þá duga svokölluð smálán sem eru lítil lán ætluð til að koma fólki áfram sem vantar smávægilega hjálp í sínum rekstri.
Smálánin hafa verið þekkt frá árinu 1983 en þá stofnaði upphafsmaður þeirra, prófessor Muhammad Yunus fyrsta smálánabankann Grameen Bank í Bangladesh. Síðan hefur bankinn veitt 7,5 milljón smálána í Bangladesh. Íbúar í 97% allra þorpa í Bangladesh hafa fengið smálán. Þannig hefur bankinn komið þeim fátækustu til hjálpar. Prófessor Muhammad Yunus fékk friðarverðlaun Nóbels árið 2006 fyrir hugmyndina.
Meira um smálán, Navia og konurnar á bakvið verkefnið í tímaritinu Nýtt Líf. En Bjarney yfirgaf fyrirsætubransann þar sem hún var einn eigandi Eskimo models og Svanhvít utanríkisráðuneytið fyrir hugsjónirnar og Navia.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.