ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Íslensk yfirvöld í viðræðum við kínversk stjórnvöld

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:48 › 2. september 2008

„Við erum í sambandi við kínversk yfirvöld varðandi málið og vonum að það verði engar tafir á hans málum,“ segir Urður Gunnarsdóttir fjölmiðlafulltrúi Utanríkisráðuneytisins varðandi mál íslendingsins sem hnepptur var í varðhald í borginni Guangzhou í Kína á dögunum.

Hún segir Utanríkisráðuneytið vera að beita sér fyrir því að honum verði sleppt úr haldi á allra næstu dögum. „Ég get ekki tjáð mig meira um þetta mál,“ segir Urður þegar blaðamaður spyr hana um það hvað felist nákvæmlega í þeim viðræðum sem eiga sér stað. Hún segir engin tvö mál vera eins en Utanríkisráðuneytið beiti sér ávallt fyrir því að veita hverjum þeim íslendingi sem lendir í vanda erlendis aðstoð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.