Þjóðarhreyfingin boðaði til heldur óhefðbundins blaðamannafundar í dag í svínastíu Fjölskyldu- og Húsdýragarðsins. Í tilefni þess að Alþingi er nú að koma saman á ný eftir sumarleyfi ákvað Þjóðarhreyfingin að kynna sérstaka útgáfu sína á bókinni Animal Farm eftir George Orwell sem færa á þingmönnum að gjöf.
Ekki voru þó þingmenn boðaðir í svínastíuna því bókunum var að blaðamannafundinum loknum komið til skila upp á Alþingi. Með athæfinu vill Þjóðarhreyfingin hvetja þingmenn til dáða á komandi þingári, þá sérstaklega við endurskoðun eftirlaunalaganna.
„Þjóðin býr í grundvallaratriðum við sömu lífeyrisréttindi. Alþingismenn, ráðherrar og hæstaréttardómarar eiga einfaldlega að njóta sömu réttinda og aðrir opinberir starfsmenn. Sú leiðrétting þolir enga bið. Að því fengnu ber að jafna lífeyrisréttindi þannig að fólk á almennum vinnumarkaði njóti ekki lakari réttinda en opinberir starfsmenn gera nú." segir í tilkynningu hreyfingarinnar.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir