ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Gert að skilja við hátt í hundrað konur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:20 › 2. september 2008
  • Nígerísk stúlka við vinnu sína.

    Nígerísk stúlka við vinnu sína.Óþekkt

Nígeríumaðurinn Mohammadu Bello Abubakar þarf að skilja við áttatíu og tvær af áttatíu og sex eiginkonum sínum. Íslamskur dómstóll hefur ákveðið að Abubakar verði að láta sér nægja fjórar eiginkonur.

Mohammadu Bello Abubakar, sem er áttatíu og fjögurra ára, hefur fengið tveggja daga frest til að vísa konunum á dyr, en það er alls ekki með glöðu geði sem hann mun framfylgja því.

Með eiginkonunum hefur Abubakar eignast ekki færri en eitthundrað og sjötíu börn og sumum kvennanna hefur hann verið kvæntur í þrjátíu ár. Ef Mohammadu Bello Abubakar hlítir ekki úrskurðinum á hann yfir höfði sér líflátsdóm, segir á vefsíðu BBC.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.