Eins árs gömul stúlka frá Hafnarfirði greindist með inflúensu af B-stofni í lok síðasta mánaðar. Ekki er hægt að fullyrða að það merki að inflúensan sé snemma á ferðinni í ár. Venjulega líða nokkrar vikur frá því að inflúensa greinist fyrst þar til faraldur brýst út. Allur er þó varinn góður og rétt að hefja bólusetningar eftir að bóluefnið berst.
Sá tími nálgast nú óðum að árleg inflúensubólusetning hefjist, en miðað hefur verið við októberbyrjun. Áætlað er að bóluefnin verði komin til landsins í lok septembermánaðar.
Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:
- Allir einstaklingar 60 ára og eldri.
- Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum
hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja
sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi
sjúkdómum.
- Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga
í áhættuhópum sem taldir eru
upp hér að ofan.
Greint er frá þessu í nýútkomnum Farsóttarfréttum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ