ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Sprengdu óvart fallbyssu í brúðkaupinu

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:30 › 2. september 2008
Gömul fallbyssa í Stokkhólmi.

Gömul fallbyssa í Stokkhólmi. Óþekkt

Brúðhjón ein í Svíþjóð munu seint gleyma bruðkaupsveislu sinni. Allt var til reiðu, veisluborðið dekkað og skerjagarðurinn við Stokkhólm skartaði sínu fegursta þetta laugardagskvöld í ágúst á eynni Lidingö. Gestir höfðu gert sér gott af opnunardrykknum og voru við að setjast að kræsingum.

En áður skyldi skotið einu skoti úr gamalli fallbyssu, til heiðurs hinu nýgifta pari. Ekki fór sem ætlað var og fallbyssan sprakk í tætlur með þeim afleiðingum að kona ein fékk sprengjubrot í aðra mjöðmina og varð frá að hverfa.

Að sögn sænsku lögreglunnar er konan ekki í lífshættu og meiðsl hennar ekki alvarleg.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.