ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.1° 8m/s S

Björgvin hittir bölsýnismann

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:20 › 2. september 2008
Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hittir breskan ráðherra í vanda.

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra hittir breskan ráðherra í vanda.

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fundar í dag með Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, sem nú er harðlega gagnrýndur í Bretlandi fyrir bölsýni.

Björgvin og Darling munu ræða stöðuna á fjármálamörkuðum og framtíðarhorfur í fjármálastarfsemi. Ekki er víst að bjart verði yfir Björgvin eftir fundinn, ef Darling kynnir honum sína sýn. Hann sagði nýverið að Bretar væru að ganga í gegnum verstu kreppuna í 60 ár. Darling er í kröppum dansi vegna ummælana og eru breskir fjölmiðlar nú uppfullir af yfirlýsingum um að hann verði settur af.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.