ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 10m/s ESE

30 milljarða gjaldeyrislán

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:15 › 2. september 2008
Geir flutti skýrslu um efnahagsmál í dag.

Geir flutti skýrslu um efnahagsmál í dag. Mynd: DV

Verið er að ganga frá nýju gjaldeyrisláni að upphæð rúmlega 30 milljarða króna. Þetta sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi í dag. Jafnframt sagði Geir að kjör lánsins væru mun hagstæðari en hið svokallaða skuldatryggingaálag á ríkissjóð gæfi til kynna.

Geir flutti skýrslu um efnahagsmál fyrr í dag. Geir sagði að gjaldeyrisforðinn væri nú hlutfallslega mun meiri en í flestum nágrannalöndum ef miðað væri við landsframleiðslu. Þá sagði Geir að ríkisstjórnin hefði gert sitt til að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu og fjárlagafrumvarpið í október og stefnuræða hans muni bera þess merki.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.