Benedikta Jónsdóttir, hjá Manni lifandi, segir að kemísk efni sé að finna í flestum mat. Hún gagnrýnir Mjólkursamsöluna harðlega fyrir að matreiða eitur ofan í börn.
„Ég get ekki annað sagt en að ég sé hneyksluð á Mjólkursamsölunni, sem er orðin stærsta sælgætisverksmiðja landsins. Gervisykur er þvílíkt eitraður og miklu verri en hvítur sykur og þessu er verið að troða í börnin," segir Benedikta, í viðtali í nýjasta tölublaði Vikunnar.
Benedikta gefur þar góð ráð úr viskubrunni sínum. Meðal annars útskýrir hún að „diet"-vörur fiti fólk, að MSG sé að finna í flestum unnum, ólífrænum matvælum, að hvítur sykur sé bölvaldur og margt fleira.
Yfir fimm þúsund gerviefni eru leyfð í matvælum og dæmi er um að nöfnunum á þeim sé breytt þegar neytendur verða mótfallnir þeim, eins og þekkt er með Þriðja kryddið MSG, sem breytt var í E-621 og síðar einfaldlega „flavoring".
Meira í Vikunni.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir