Hópur vísindamanna reynir nú að stöðva gangsetningu eindahraðals sem fyrirhugað er að gangsetja undir landamærum Frakklands og Sviss þann tíunda september. Telur hópurinn að gangsetning hans muni valda ragnarökum á jörðinni.
Hraðalnum sem um ræðir er meðal annars ætlað að sýna fram á hvernig heimurinn varð til. Hraðallinn hefur verið í byggingu undanfarin ár en hann er um 28 kílómetra langur en bygging hans kostaði um 660 milljarða króna. Vísindamenn vonast til þess að með hraðalnum verði hægt að „sjá“ áður ósýnilegt efni og víddir sem skynfæri mannsins hafa ekki fengið numið. Vísindamenn telja að þetta ósýnilega efni myndi 96 prósent af alheiminum.
Gagnrýnendur hraðalsins hafa áhyggjur af því að með gangsetningu hans muni myndast svarthol sem, í versta falli, gleypi jörðina eða eyði henni með öðrum hætti. Það er Atómrannsóknarstöð Evrópu sem stendur fyrir byggingu hraðalsins og segja talsmenn hennar að hraðallinn muni ekki skapa neitt sem ekki nú þegar sé þekkt í náttúrunni.




Þau drög að uppsögn Gunnars Andersen, forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem birst hafa almenningi, bera þess merki að annarleg sjónarmið kunni að liggja að baki. Svo mikið lá á að koma Gunnari ... 
Lík fimm ára telpu fannst í Costa Concordia
Ákærður fyrir morð og nauðgun á 98 ára konu
„Eins og að vera í þvottavél“
Forsætisráðherrafrú leitar réttar síns
Stríðsfréttaritarinn Marie Colvin lést í sprengingu