ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.7° 9m/s E

Rógur í dagbók ritstjórans

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:37 › 31. ágúst 2008
  • Matthías Johannessen hefur beðist afsökunar.

    Matthías Johannessen hefur beðist afsökunar. DV

Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins,hefur beðið Guðjón Friðriksson rithöfund afsökunar á frásögn af honum á netsíðu sinni, matthias.is. Þetta kom fram í Ríkisútvarpinu í kvöld.

Í dagbók Matthíasar frá árinu 1998 er lýst framkomu Guðjóns gagnvart nemanda sínum í Ármúlaskóla sem hann átti að hafa gefið 4 í einkunn þegar nemandinn verðskuldaði 9. Umrædd ritgerð fjallaði um skáldverk Matthíasar. Átti Guðjón í framhaldinu að hafa hrökklast frá skólanum og til Ísafjarðar. Guðjón var mjög ósáttur með frásögn Matthíasar enda hafði hann aldrei kennt við Ármúlaskóla og þekkti hvorki haus né sporð á umnræddum nemanda. Matthías varð ekki við því að fjarlægja frásögnina þótt Guðjón hótaði honum lögsókn vegna rógsins. Hefur Ríkisútvarpið eftir Guðjóni að nú sé málinu lokið með því að Matthías hafi beðið sig afsökunar.
Dagbækur Matthíasar hafa vakið gríðarlega athygli en þar segir hann frá einkasamtölum við ýmsa ráðamenn og ljóstrar upp um baktjaldamakk ritstjóra Morgunblaðsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.