ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Ely var í raun stolin Elysee

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:12 › 27. ágúst 2008
Skútunni var stolið í september síðastliðnum.

Skútunni var stolið í september síðastliðnum. Mynd: DV

„Já, ég get staðfest það að hún er farin úr höfninni,“ segir Jón Garðar Bjarnason, aðstoðarvarðstjóri hjá lögreglunni á Höfn. Skútan Ely var í raun og veru skútan Elysee frá Hollandi eins og DV hafði sagt frá. Skútunni var stolið í september síðastliðnum þar ytra og seld í hendur Jónasar Árna Lúðvíkssonar, sem hélt að löglega hefði verið staðið að viðskiptunum.

Skútan var kyrrsett á Höfn eftir að grunur kviknaði um að skútan Ely væri í raun Elysee. Hollenska tryggingafélagið hafði fengið fyrirtækið Dextton, sem sérhæfir sig í að finna stolnar skútur, með sér í lið til að hafa uppi á skútunni.

„Við höfum vitað af henni á Íslandi í marga mánuði. Þegar við létum hollensku lögregluna fá allar upplýsingar kom hins vegar upp eitthvert leyndardómsfullt dæmi frá Europol. Þeir sýndu skútunni mikinn áhuga,“ segir Menno den Drijver hjá Dextton. Nóg er að gera hjá Drijver og félögum í að finna stolnar skútur en hann segir hvern einasta dag ársins vera skipulagðan hjá sér.

Drijver sagði enn fremur að aðstæður yrðu metnar í framhaldinu, hvort skútan yrði sett á sölu hér á landi eða ekki. Það ætti eftir að koma í ljós. Fróðir menn hafa sagt að skútan fari varla á undir tuttugu milljónum, verði hún sett á sölu hér. „Við erum bara ánægðir með að skútan er kominn til réttmætra eigenda,“ segir Jón Garðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?