ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Köstuðu eggjum í vegfarendur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:34 › 24. ágúst 2008
Lögreglan að störfum.

Lögreglan að störfum.

Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði tvo unga pilta á laugardagskvöldið þar sem þeir óku um miðbæinn og köstuðu eggjum í gangandi vegfarendur. Strákarnir eru aðeins sextán ára og því hvorugur með bílpróf.

Sá sem var farþegi í bílnum viðurkenndi að þeir hefðu verið að kasta eggjum en notaði það sér til málsbóta að þeir hefðu ekki hitt neinn. Kveikjuláslyklarnir voru teknir af þeim og telst málið vera upplýst.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.