„Það eina sem ég get hugsað um núna er að hitta fallegu konuna mína. Drengina mína þrjá og dóttur mína sem er 9 mánaða. Ég er ekki að velta fyrir mér handboltaþjálfun á þessu stigi,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari klökkur eftir að hafa stýrt íslenska handboltalandsliðinu til besta árangurs í sögu íslenskra hópíþrótta.
Guðmundur var enda klökkur þegar DV spjallaði við hann eftir úrslitaleikinn. „Það er skrítin tilfinning að vera búinn að vinna silfrið en svekktur að tapa gullinu. Maður þarf að reyna að ýta því frá sér og fagna. Hópurinn er einstaklega vel skipaður. Hann hefur æft gríðarlega vel og rétt. Allir sem hafa komið að þessu hafa verið frábærir, maður vill ekki gleyma neinum en í mínu hjarta er mikið þakklæti.“ Guðmundur segist andlega mjög þreyttur og hann er ekki tilbúinn til þess að taka ákvörðun um framtíð sína sem landsliðsþjálfara á þessari stundu.
Lestu viðtalið við Guðmund í heild sinni og úttekt um handboltahetjurnar frá Peking í DV á morgun.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning