Meðaleinkunn ráðherranna í ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks er 5,7. Álitsgjafarnir sem sátu í dómnefnd DV voru tíu og gáfu þeir hverjum ráðherra fyrir sig einkunn á bilinu einn og upp í tíu. Þrír ráðherranna falla á prófinu en það eru þau Þórunn Sveinbjarnadóttir, Kristján L. Möller og Árni M. Matthiesen.
Fjármálaráðherrann fær lægstu einkunnina í ráðherrahópnum eða 3,6. Meðaltal ráðherra Sjálfstæðisflokksins er 5,4 á meðan meðaltal ráðherra Samfylkingarinnar er 6,1. Geir H. Haarde forsætisráðherra fær 5,9 í meðaleinkunn en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fær 6,0. Björn Bjarnason og Geir H. Haarde standa sig best sjálfstæðismanna samkvæmt niðurstöðunum. Jóhanna Sigurðardóttir trónir á toppnum og hefur talsverða yfirburði á aðra ráðherra.





Páll Óskar: „Ísland á að draga sig útúr Eurovision“
Kona réðst að öryggisverði í 10-11
Á ótryggðum bíl vegna gjaldþrots án þess að vita það
Vatnskóngurinn opnar tískuskóla
„Hún var góð manneskja og góð vinkona“